Margrét Sveinbjörnsdóttir hefur tekið við sem sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs hjá dk hugbúnaði, að því er kemur fram í tilkynningu.

Margrét hóf fyrst störf hjá dk hugbúnaði árið 2002 til ársins 2003 og hefur starfað samfleitt hjá félaginu frá árinu 2007, fyrst sem ráðgjafi á þjónustusviði og síðar sem viðskiptaþróunarstjóri.

Margrét hefur lokið B.Sc. námi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.

„Fyrirtækið hefur gengið í gegnum þó nokkrar breytingar síðustu misseri og framundan eru stór og spennandi verkefni sem ég hlakka til að takast á við með starfsmönnum fyrirtækisins. Nú í ár fagnar dk hugbúnaður 25 ára afmæli sínu og munum við fagna þeim tímamótum með starfsmönnum og viðskiptavinum. Ég hlakka mikið til að nýta mína reynslu og þekkingu á þeirri vegferð sem framundan er hjá fyrirtækinu, Framtíðin er björt og mikil tækifæri fyrir viðskiptavini dk að nýta lausnir okkar til að takast á við áskoranirnar sem við stöndum öll frammi fyrir í stafrænum veruleika,“ segir Margrét.

„Margrét er með frábæra reynslu og þekkingu sem ég er ekki í nokkrum vafa um að eigi eftir að styrkja okkur enn frekar í þeim verkefnum sem framundan eru. Hún er öflugur og kraftmikill leiðtogi og reynsla hennar nýtist vel,“ segir Hulda Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri dk.

dk hugbúnaður hefur selt einn vinsælasta viðskiptahugbúnað landsins í aldarfjórðung. Hjá dk hugbúnaði starfa rúmlega 60 manns við hugbúnaðargerð og þjónustu.