Sveinbjörn Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri eignastýringar Fossa fjárfestingarbanka. Hann hefur störf hjá Fossum í sumar, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Sveinbjörn kemur til Fossa frá Íslandsbanka þar sem hann hefur starfað síðastliðin 20 ár. Síðastliðin 14 ár hefur hann unnið hjá eignastýringu Íslandsbanka, fyrst sem viðskiptastjóri í einkabankaþjónustu og sem forstöðumaður frá 2013. Hann tók svo við sem forstöðumaður eignastýringar Íslandsbanka 2018.

Sveinbjörn er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með próf í verðbréfaviðskiptum.

„Ráðning Sveinbjörns er liður í yfirlýstri stefnu Fossa fjárfestingarbanka að leggja áherslu á eignastýringu í vaxtaráformum bankans á komandi árum.“

Anna Þorbjörg verður framkvæmdastjóri nýs lánasviðs

Anna Þorbjörg Jónsdóttir sem stýrt hefur uppbyggingu eignastýringar Fossa til þessa mun söðla um og taka við stöðu framkvæmdastjóra nýs lánasviðs Fossa. Hún mun að auki áfram leiða þróun á alþjóðlegu vöruframboði bankans með áherslu á erlenda sjóði.

Anna Þorbjörg hefur starfað hjá Fossum fjárfestingarbanka síðan 2016 og byggt upp erlent vöruframboð og eignastýringarsvið. Hún hefur starfað í framkvæmdastjórn bankans síðastliðin þrjú ár.

Anna Þorbjörg Jónsdóttir hefur starfað í framkvæmdastjórn Fossa fjárfestingarbanka síðastliðin þrjú ár.
© Eyþór Árnason (Eyþór Árnason)

Anna Þorbjörg er hagfræðingur og fjármálastærðfræðingur með meistarapróf frá UCLA og USC. Hún var einn stofnenda World Financial Desk LLC, hátæknifjármálafyrirtækis með aðsetur í New York.

„Undanfarin ár höfum við í Fossum fjárfestingarbanka lagt grunninn að traustri og fjölbreyttri fjármálaþjónustu fyrir viðskiptavini okkar. Í þeirri vinnu skiptir miklu máli að hafa reynslumikið fólk í teyminu sem hefur framúrskarandi þekkingu á fjármálamarkaði. Því er það mikið ánægjuefni fyrir okkur í Fossum að Sveinbjörn gangi til liðs við okkur þar sem hann tekur við keflinu af Önnu Þorbjörgu sem hefur lagt grunninn að eignastýringu Fossa,“ segir Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka.

„Það er spennandi tækifæri fyrir okkur að setja á laggirnar nýtt lánasvið Fossa á komandi misserum samhliða áframhaldandi þróun á erlendu vöruframboði. Þessar skipulagsbreytingar eru til þess fallnar að nýta þau tækifæri sem nýtt starfsleyfi og aukin umsvif skapa ásamt því að styðja við markmið okkar um vöxt á lykilsviðum bankans.“