Sveinbjörn Finnsson hefur verið ráðinn forstöðumaður nýrrar deildar Verkefnaþróunar hjá Landsvirkjun á sviði Viðskiptaþróunar og nýsköpunar.

Deildin leiðir þróun verkefna í tengslum við endurnýjanlega raforkuvinnslu erlendis og rafeldsneytisframleiðslu á Íslandi.

Sveinbjörn hóf störf hjá Landsvirkjun árið 2015 sem sérfræðingur í viðskiptagreiningu og hefur síðustu tvö ár starfað sem viðskiptaþróunarstjóri. Hann hefur unnið að þróun viðskiptatækifæra, leitt samningaviðræður við nýja viðskiptavini og stýrt verkefnaþróun. Sveinbjörn er meðal annars með M.Sc. gráðu í orkuverkfræði frá ETH í Zürich og alþjóðlega IPMA vottun í verkefnastjórnun.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að vegna loftslagsbreytinga er verið að skipta jarðefnaeldsneyti út fyrir endurnýjanlega orku og að það kalli á verkefni á borð við þau sem Sveinbjörn og hans fólk mun leiða. Landsvirkjun, ásamt samstarfsaðilum, hefur byrjað að þróa verkefni sem snúa að framleiðslu vetnis og metanóls fyrir orkuskiptin