Teitur Björn Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Mun hann meðal annars sinna verkefnum á sviði sjálfbærni og þjóðaröryggismála auk þess að vinna að samhæfingu mála ásamt öðrum aðstoðarmönnum.

Teitur Björn var aðstoðarmaður dómsmálaráðherra frá febrúar síðastliðnum en áður starfaði hann sem lögmaður hjá Íslensku lögfræðistofunni og sem aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Þá hefur hann setið á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og er nú varaþingmaður flokksins.

Aðstoðarmenn ríkisstjórnarinnar eru nú þrír talsins í samræmi við heimild í lögum um Stjórnarráð Íslands nr. 115/2011. Henný Hinz er aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar á sviði vinnumarkaðs-, efnahags- og loftslagsmála og Dagný Jónsdóttir aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar um samhæfingu mála.