Þóra Arnórsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun. Greint er frá ráðningu hennar í fréttatilkynningu.

Þóra hefur starfað við frétta- og dagskrárgerð í um aldarfjórðung. Hún hefur unnið bæði í útvarpi og sjónvarpi, hjá Stöð 2 og RÚV, síðustu ár sem ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks. Þóra var einnig stundakennari við Háskóla Íslands um árabil þar sem hún kenndi alþjóðastjórnmál.

Þóra er með B.A. gráðu í heimspeki frá HÍ og Háskólanum í Genúa á Ítalíu og M.A. gráðu í alþjóðastjórnmálum og þróunarhagfræði frá Johns Hopkins SAIS, Bologna og Washington DC.

„Það er ánægjulegt fyrir Landsvirkjun að fá Þóru til liðs við fyrirtækið. Reynsla hennar og þekking mun koma sér vel í þeim áhugaverðu verkefnum og framkvæmdum sem fram undan eru. Nú sem endranær leggur Landsvirkjun mikla áherslu á samvinnu og góð samskipti við almenning, aðra hagaðila og nærsamfélög, samhliða innri upplýsingagjöf til starfsfólks. Það er mikilvægt að hafa öflugan einstakling til að leiða slík verkefni,“ segir í tilkynningu Landsvirkjunar.