Þórdís Valsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður útvarpsmiðla Sýnar og mun hún því stýra Bylgjunni, FM957, X977, Gullbylgjunni, Léttbylgjunni og Íslensku bylgjunni. Þórdís tekur við starfinu í byrjun júní.

Hún hefur starfað sem þáttastjórnandi Reykjavík síðdegis á Bylgjunni frá árinu 2019 ásamt því að starfa við dagskrárgerð á Stöð 2. Áður var hún fræðslustjóri hjá Sýn og blaðamaður bæði á Vísi og Fréttablaðinu. Hún lauk meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2018.

„Rúmur meirihluti þjóðarinnar hlustar á útvarpsstöðvar okkar á hverjum degi og við viljum að svo verði áfram. Þórdís er með góða fjölmiðlareynslu og mikill leiðtogi. Ég veit hún á eftir að verða farsæl í þessu starfi,“ segir Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjölmiðla Sýnar.

„Á útvarpsstöðvunum okkar starfar frábær hópur af hæfileikaríku fagfólki með gríðarlega mikla reynslu í farteskinu og ég er spennt að taka þátt í því halda áfram að efla stöðvarnar með því frábæra fólki. Útvarp er lifandi og skemmtilegur miðill í heimi þar sem fjölmiðlar eru í stöðugri þróun og það er mér mikið kappsmál að koma móts við fjölbreyttar þarfir okkar breiða hlustendahóps,“ segir Þórdís.