Þórey Jónsdóttir hefur verið ráðin sem mannauðsstjóri lyfjafyrirtækisins Coripharma. Hún mun einnig taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu. Coripharma sérhæfir sig í þróun og útflutningi á samheitalyfjum.

Þórey hefur yfir 10 ára reynslu af mannauðsmálum, síðast sem framkvæmdastjóri Mannauðs og þjálfunar hjá Airport Associates á Keflavíkurflugvelli frá 2017-2022. Áður starfaði hún við mannauðsmál hjá General Electric í Osló, Noregi á árunum 2013-2017 og hjá Motus, Íslandi á árunum 2008-2009.

Þórey er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og MSc í leiðtoga- og skipulagssálfræði frá BI Norwegian Business School.

Þórey Jónsdóttir, nýr mannauðsstjóri Coripharma:

„Ég er ánægð með að hafa fengið þetta tækifæri. Coripharma er spennandi fyrirtæki með framúrskarandi starfsmannahóp. Ég hlakka til að takast á við þær magvíslegu áskoranir sem felast í áframhaldandi vexti félagsins".

Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma:

„Það er frábært að fá Þóreyju til liðs við öflugan hóp starfsfólks hjá Coripharma. Hún hefur víðtæka reynslu og þekkingu á mannauðsmálum sem mun nýtast vel í þeim mikla vexti sem framundan er hjá fyrirtækinu".