Þrír nýir forstöðumenn hafa tekið til starfa á síðustu misserum hjá Sjóvá, þau Gunnar Snorri Þorvarðarsson, Heiður Huld Hreiðarsdóttir og Hinrik Reynisson.

Gunnar Snorri Þorvarðarson hefur tekið við stöðu forstöðumanns reikningshalds. Gunnar er með MSc í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskólanum í Reykjavík og er löggiltur endurskoðandi. Gunnar Snorri kemur til Sjóvá frá Marel en þar var hann sérfræðingur á fjármalasviði. Áður vann hann sem endurskoðandi hjá Baker Tilly á Íslandi.

Heiður Huld Hreiðarsdóttir tók nýlega við starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar. Hún er menntaður verkefnastjóri og leiðtogaþjálfi frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Heiður Huld hefur unnið í fyrirtækjaráðgjöf Sjóvá síðan 2015, fyrst sem viðskiptastjóri og síðar hópstjóri. Áður starfaði hún sem viðskiptastjóri hjá fyrirtækjaráðgjöf TM.

Hinrik Reynisson hefur verið ráðinn forstöðumaður einstaklingsráðgjafar. Hann hefur unnið hjá Sjóvá síðan 2013, fyrst sem ráðgjafi og síðar verkefnastjóri í einstaklingsráðgjöf. Hann starfaði síðan sem útibússtjóri Sjóvá í Reykjanesbæ frá 2020-2022. Hinrik er með BSc próf í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík með lögfræði sem aukagrein.

„Það er hreyfing á fólki hjá okkur eins og í öðrum stórum fyrirtækjum. Við erum heppin að því leyti að hjá okkur er mikið af hæfu fólki sem sækir um stöður sem losna. Þannig erum við reglulega að ráða innanhúss í lausar stjórnunarstöður, eins og í tilviki Hinriks og Heiðar. Gunnar kemur til okkar frá Marel. Hann er með mikla reynslu og þekkingu sem á eftir að nýtast okkur vel,” segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár.