Þrír nýir stjórnendur hafa verið ráðnir til starfa hjá Landsbankanum, á sviði áhættustýringar, eignastýringar og miðlunar og í markaðsdeild. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bankans.

Guðlaug Arnþrúður Guðmundsdóttir , kölluð Adda, hefur tekið við starfi forstöðumanns viðskiptalausna á sviði eignastýringar og miðlunar. Adda hefur starfað hjá bankanum frá árinu 2011, síðast sem sérfræðingur hjá viðskiptalausnum á einstaklingssviði en áður starfaði hún sem sérfræðingur í rekstraráhættu. Hún hefur leitt umfangsmikil sjálfsafgreiðsluverkefni fyrir Landsbankann, þar á meðal innleiðingu á Apple Pay og Sparað í appi.

Adda er með B.Sc. gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og er að ljúka prófi í verðbréfaviðskiptum frá sama skóla.

Guðrún Anny Hálfdánardóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns markaðsáhættu sem tilheyrir áhættustýringu bankans. Guðrún hefur unnið hjá bankanum frá árinu 2007 en var áður hjá Kaupþingi frá 2005. Hún var sérfræðingur hjá áhættustýringu frá 2007-2019, fyrst í eigna- og skuldaáhættu og síðar markaðsáhættu. Árið 2019 starfaði hún hjá viðskiptalausnum á einstaklingssviði við framþróun og sjálfvirknivæðingu, m.a. við innleiðingu á Aukalánum.

Guðrún er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. gráðu í stjórnunarreikningsskilum og viðskiptagreind frá sama skóla, sem og próf í verðbréfaviðskiptum.

Hjalti Harðarson hefur verið ráðinn forstöðumaður markaðsdeildar Landsbankans en hann hefur 15 ára reynslu af markaðsmálum og þróun í stafrænu umhverfi. Undanfarið hefur Hjalti starfað sem teymisstjóri stafrænnar grósku í markaðsdeild Arion banka en þar leiddi hann m.a. vinnu við gagnadrifna markaðssetningu. Áður var hann markaðsstjóri Öskju, markaðsráðgjafi hjá auglýsingastofunni Sahara, framkvæmdastjóri Kjarnans miðla og deildarstjóri hjá Símanum.

Hjalti er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskóla Kaupmannahafnar (CBS) og M.Sc. gráðu frá sama skóla í alþjóðamarkaðssetningu og stjórnun.