Klappir grænar lausnir hafa ráðið Tinnu Hallgrímsdóttur til starfa. Hún mun gegna stöðu sérfræðings í sjálfbærni hjá fyrirtækinu.

Tinna hefur starfað í sjálfbærni- og umhverfismálum um hríð, sér í lagi í hagsmunagæslu. Hún er forseti Ungra umhverfissinna, einn skipuleggjenda Loftslagsverkfallsins og var skipuð af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í Loftslagsráð. Tinna er jafnframt ungmennafulltrúi Íslands í sérfræðingahóp Norrænu ráðherranefndarinnar um sjálfbæra þróun.

Áður gegndi hún stöðu ungmennafulltrúa Íslands til Sameinuðu þjóðanna á sviði sjálfbærrar þróunar ásamt því að vera varafulltrúi á sviði mannréttinda. Tinna hefur hlotið viðurkenningu fyrir störf sín, en hún var valin Félagi ársins 2021 hjá Landssambandi ungmennafélaga.

Tinna hefur einnig gegnt ýmsum öðrum verkefnum á sviði sjálfbærni, m.a. var hún skipuð formaður dómnefndar Kuðungsins árið 2022, umhverfisviðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, skipuð í dómnefnd fyrir Arctic Awards á vegum Northern Periphery and Arctic Programme og í ráðgjafarnefnd fyrir NAARCA.

Tinna er með meistaragráðu í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands auk B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði.

Klappir, sem er skráð á First North-markaðinn, þróar hugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum og öðrum stofnunum að bera kennsl á losunarþætti þeirra og aðstoðar við að gera ráðstafanir til að minnka kolefnisfótspor þeirra.