Running Tide hefur ráðið tvo nýja stjórnendur, þau Örnu Hlín Daníelsdóttur og Mikko Koskinen.

Arna Hlín Daníelsdóttir er nýr rekstrarstjóri Running Tide á Íslandi. Arna var áður rekstrarstjóri ráðgjafafyrirtækisins Expectus en þar á undan starfaði hún í fimm ár hjá alþjóðlega tæknifyrirtækinu Tempó. Arna er með meistaragráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Mikko Koskinen hefur verið ráðinn markaðsstjóri Running Tide á heimsvísu en hann flutti hingað til lands frá Finnlandi sérstaklega til að starfa hjá fyrirtækinu. Mikko er með meistaragráðu í vélaverkfræði og aukagrein í iðnhönnun frá Aalto háskólanum.

Mikko stofnaði rúgbrennsluna Kyrö sem er í dag einn stærsti viskí- og ginframleiðandi á Norðurlöndum. Hann er einnig meðstofnandi og stjórnarformaður Nemo Seafarms, fyrirtækis á frumstigi sem vinnur að því að draga úr of miklu magni næringarefna með því að rækta þang í Eystrasalti.

Running Tide er sjávartæknifyrirtæki sem hannar og þróar tækni til að örva náttúrulegt ferli sjávarins við að fjarlægja kolefni varanlega úr andrúmsloftinu, vinna gegn súrnun sjávar og bæta lífríki hafsins. Fyrirtækið er fyrsti samstarfsaðili Transition Labs, sem Davíð Helgason og Kjartan Örn Ólafsson stofnuðu nýlega til að leita uppi erlend loftslagsverkefni til að koma á legg hér á landi.

Running Tide er með starfsemi á þremur stöðum á Íslandi: í Lækjargötu í Reykjavík, á Breiðinni á Akranesi og á Grundartanga, þar sem athafnasvæði fyrirtækisins er.

Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, framkvæmdastjóri Running Tide:

„Reynsla Örnu og Mikko mun nýtast vel innan Running Tide. Mikko er margreyndur frumkvöðull og er hann fyrsti starfsmaður fyrirtækisins sem hefur aðsetur á Íslandi en starfar þvert á félagið og allar okkar staðsetningar. Arna hefur áður unnið hjá alþjóðlegu fyrirtæki og mun hún gegna lykilhlutverki í uppbyggingu á starfseminni á Íslandi. Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur og við munum halda áfram að stækka teymið á næstu misserum.“