Valgeir M. Baldursson hefur verið ráðinn forstjóri Terra. Valgeir hefur undanfarin ár starfað sem fjármálastjóri og framkvæmdastjóri hjá VÍS en þar áður var hann forstjóri Skeljungs.

Gunnar Bragason, sem verið hefur forstjóri Terra, mun starfa áfram með félaginu sem ráðgjafi næstu misserin og samið hefur verið við hann um að leiða starf félagsins, hvað varðar mögulega aðkomu þess að sorpbrennslu og útflutning á sorpi á næstu mánuðum. Gunnar hefur starfað hjá félaginu síðan í janúar 2008, síðustu ár sem forstjóri.

„Undir forystu Gunnars hefur félagið vaxið og dafnað og viðhaldið ótvíræðri forystu félagsins á sínum helsta markaði sem er umhverfisþjónusta. Hann hefur tekið þátt í að þróa nýja stefnu og framtíðarsýn félagsins, það er að innleiða nýja hugsun um flokkun og endurvinnslu, og grundvallast í kjörorði fyrirtækisins: Skiljum ekkert eftir,“ segir í fréttatilkynningu Terra.

Terra sinnir alhliða umhverfisþjónustu fyrir sveitarfélög og nokkur þúsund fyrirtæki um land allt. Meginstoð fyrirtækisins er flokkun og endurvinnsla og Terra leiðbeinir og hjálpar fyrirtækjum að bæta umgengni sína við jörðina með því að koma öllum endurvinnsluefnum sem falla til í viðeigandi farveg. Fyrirtækið var valið Umhverfisfyrirtæki atvinnulífsins árið 2020.