Nýverið bættust þau Valgerður Kristjánsdóttir og Ágúst Kristinsson við eigendahóp endurskoðunarfyrirtækisins PwC. Eigendur PwC á Íslandi eru nú 17 talsins.

Valgerður Kristjánsdóttir útskrifaðist með Cand. oecon. gráðu frá Háskóla Íslands árið 2004 og hlaut löggildingu í endurskoðun árið 2009. Hún starfaði sem meðeigandi á endurskoðunarsviði EY til ársins 2022 og hóf svo störf hjá PwC í ársbyrjun 2023.

Valgerður hefur sinnt kennslu í Endurskoðunarferli I, við meistaranám Háskóla Íslands. Valgerður er gift Bjarka Guðjónsyni, kvikmyndagerðarmanni hjá Trickshot og eiga þau tvö börn.

Ágúst Kristinsson, löggiltur endurskoðandi, hóf störf hjá PwC í ársbyrjun 2019. Hann hafði áður rekið sína eigin endurskoðunarskrifstofu og sinnt ýmsum verkefnum í reikningsskilum, ráðgjöf og endurskoðun. Ágúst starfaði hjá Deloitte í Reykjavík og New York í 18 ár, var í slitastjórn Byrs sparisjóðs og hefur setið í stjórnum og nefndum, einkum hjá fjármálafyrirtækjum og lífeyrissjóðum.

Ágúst lauk Cand. Oecon. prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hann hlaut löggildingu til endurskoðunarstarfa árið 2010.