Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,18% í dag og endaði í 1873,55 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 0,39% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Marel, eða um 0,58% í viðskiptum sem hljóða upp á 313 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 259 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Vodafone, eða um 1,37% í rúmlega 100 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Vodafone er þá 44,3 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,14% í viðskiptum sem hljóða upp á 1,2 milljarða króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 34,90 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Reita um 0,23% í viðskiptum upp á 97 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 87,8 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 2,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 7,9 milljarðar króna.