Skráð atvinnuleysi í febrúar 2008 var 1% eða að meðaltali 1.631 manns, sem eru 86 fleiri en í janúar sl. eða um 5% aukning.

Atvinnuleysi er um 20% minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,3%. Atvinnuleysi eykst á höfuðborgarsvæðinu um 6% og er 0,7% eða sama og í janúar. Á landsbyggðinni eykst atvinnuleysi um 5% og er 1,6% en var 1,5% í janúar. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar.

Atvinnuleysi kvenna eykst líttilega

Þá kemur fram að atvinnuleysi karla hefur lítið breyst og er 0,8% eða sama og í janúar. Atvinnuleysi kvenna eykst lítils háttar og mælist 1,3% en var 1,2% í janúar.

Þeir sem verið hafa á skrá lengur en 6 mánuði voru 449 í lok febrúar, 438 í lok janúar en voru yfir 700 í aprílmánuði á síðasta ári (2007) þegar þeir voru hvað flestir á árinu. Það voru 269 atvinnulausir í meira en ár í febrúar og hefur fjöldi þeirra lítið breyst síðustu mánuði.

Nýskráningar ríkisborgara frá nýjum ríkjum ESB voru 573 í febrúar sem er talsverð aukning frá því í janúar en fækkun frá nóvember þegar skráningar voru 847 og í október 923. Útgáfa nýrra atvinnuleyfa til ríkisborgara utan EES hefur minnkað, gefin voru út 53 ný atvinnuleyfi í febrúar og voru að jafnaði gefin út á bilinu 20 til 80 ný atvinnuleyfi á mánuði á árinu 2007.

Gert ráð fyrir um 1% atvinnuleysi á árinu

„Atvinnuástandið breytist yfirleitt lítið milli febrúar og mars. Í fyrra minnkaði atvinnuleysið um 5% milli þessara mánaða og var þá 1,3% bæði í febrúar og mars,“ segir á vef Vinnumálastofnunar.

Lausum störfum hjá Vinnumálastofnun fjölgaði talsvert eða um 76 milli janúar og febrúar og voru 260 í lok febrúar. Atvinnulausum í lok febrúar fjölgaði frá lokum janúar eða um 40, sem er litlu meiri aukning en á sama tíma árið 2007 þegar fjölgaði um 23 milli þessara mánaða.

Þegar allt er talið er því líklegt að atvinnuleysið í mars 2008 muni lítið breytast og verða á bilinu 0,9%-1,2%.