Alls var 464 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í nóvember sl., sem er um 7% fækkun samninga á milli mánaða. Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu hefur þannig fækkað um 9% á milli ára.

Þá var 677 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í nóvember sem þýðir fækkun samninga um rúm 18% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Samningum hefur þannig fækkað verulega frá því í ágúst og september en eru nú á svipuðu róli og var í vor. Fjöldi leigusamninga náði hámarki í september í fyrra þegar rúmlega 1.550 samningum var þinglýst.

© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár þar sem sést hvernig samningum hefur fjölgað nokkuð yfir sumartímann en snarfækkað aftur þegar líður á veturinn.

Ef horft er á landið í heild þá var sem fyrr segir 677 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í nóvember sl., samanborið við 830 samninga í október. Samningum í nóvember fækkar um 10% á milli ára.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum eða 81 samning. Þá var 50 samningum þinglýst á Norðurlandi, 40 samningum á Suðurlandi og 27 samningum á Vesturlandi.

Þá var 7 samningum þinglýst á Vestfjörðum og 8 samningum þinglýst á Austurlandi.

Frá áramótum hefur 9.440 leigusamningum verið þinglýst á landinu öllu, þar af 6.015 á höfuðborgarsvæðinu.