10 fastráðnir flugmenn Icelandair fengu uppsagnarbréf um síðustu mánaðamót og eiga að óbreyttu að hætta um mánaðamótin nóvember/desember. Er þetta gert vegna þess, að eins og staðan er í dag, er útlit er fyrir mun færri verkefni í leiguflugi erlendis í vetur á vegum Loftleiða ehf. en stefndi í fyrr í sumar. Eftir því sem komist verður næst er þarna fyrst og fremst um að ræða varúðarráðstöfun. Viðræður standa yfir um ýmis verkefni og er því vonast til að þessi hópur komi til með að halda vinnunni.