Startup Tourism er nýr viðskiptahraðall á vegum Icelandic Startups sem leggur áherslu á viðskiptahugmyndir á sviði ferðaþjónustu. Alls bárust 74 umsóknir í viðskiptahraðalinn.

Meðal þeirra sem fengu að taka þátt eru Happyworld sem býður upp á svifíþróttaferðir og Náttúrukúlur sem bjóða upp á svefnaðstöðu í glærum kúlum í náttúrunni. Hraðallinn hefst 1. febrúar næstkomandi.