10 manna samkomutakmarkanir munu taka gildi nú á miðnætti. Þetta kom fram í máli Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, á fundi ríkisstjórnarinnar um sóttvarnaraðgerðir sem fram fer þessa stundina í Hörpu. Munu takmarkanirnar gilda í þrjár vikur.
Staðnám á grunn, mennta- og háskólastigi mun ekki vera heimilt fram að og fram yfir páska. Fleira sem kom fram í máli ráðherra:
- Trú og lífsskoðunarfélög fá taka á móti 30 gestum
- Sund- og baðstaðir, og líkamsræktarstöðvar verða lokaðar
- Íþróttir barna og fullorðinna, þar sem stafar hætta á snertismiti, eru óheimilar
- Leikhúsum og bíó loka, sem og skemmtistaðir, krár og spilakassar
- Veitingastaðir mega hafa opið til 22, með hámarki 20 gestum
- Stærri verslanir mega taka á móti að hámarki 50 manns og færri í minni verslunum
- Hársnyrtistofur og snyrtistofur fá áfram að vera með opið
Jafnframt kom fram í máli Svandísar að standi til að hefja bólusetningar á ný með bóluefni AstraZeneca.