Icelandair tapaði 376 milljónum dala eða tæpum 51 milljarði króna á síðasta ári, þar af 10,7 milljörðum á síðasta ársfjórðungi. Eigið fé tæpum 30 milljörðum í árslok og lausafé um 42 milljörðum, að verðbréfaeign og ríkisábyrgð meðtalinni. Þetta kemur fram í nýbirtu ársuppgjöri félagsins .

Miðað við óbreytt tap í ár sem dreifist jafnt yfir árið yrði lausafé félagsins uppurið á rétt tæpum 10 mánuðum. Yfirlýst markmið félagsins er að viðhalda lausafjárstöðu sem dugir fyrir 3 mánuðum af föstum rekstrarkostnaði, og að ónýttar lánalínur séu að hámarki 30% af heildar lausafé.

Handbært fé félagsins nam 15 milljörðum í árslok, og verðbréfaeign um 5 milljörðum. Sú upphæð er í skýringu þar sem fjallað er um lausafjáráhættu sögð umtalsvert hærri en lágmarkið samkvæmt umræddu markmiði, en ekki er gefið upp hver áætlaður fastur rekstrarkostnaður er, né hvert hlutfallið er í dag.

81% samdráttur tekna og sætaframboðs
Tekjur féllu um 81% milli ára á fjórðungnum og námu 7,7 milljörðum króna. Alls námu þær 59 milljörðum á árinu og féllu um 71%. Tekjur af fraktflutningum jukust hinsvegar um 48% á síðasta fjórðungi. Farþegafjöldi ársins dróst saman um 83% og sætaframboð um 81%.

Eftirspurn er enn sögð afar veik á yfirstandandi ársfjórðungi á lykilmörkuðum félagsins, en búist er við að hún fari hægt og rólega vaxandi á þeim næsta. Eins og greint hefur verið frá fengu Boeing 737 MAX-vélar félagsins nýlega flugleyfi á ný.

Launakostnaður helmingaðist
Launakostnaður nam 29 milljörðum á árinu og dróst saman um 52%, flugrekstrarkostnaður 23 milljörðum og dróst saman um 70%, og annar rekstrarkostnaður 19 milljörðum og dróst saman um 62%. Þá voru eignir færðar niður um 16 milljarða.

Á efnahagsreikningi hafa rekstrareignir lækkað um 17 milljarða, viðskiptavild og aðrar óefnislegar eignir um 15 milljarða og handbært fé um 15 milljarða, svo eitthvað sé nefnt. Heildareignir námu 132 milljörðum og drógust saman um 38% milli ára.

Eins og fram kom að ofan nam eigið fé tæpum 30 milljörðum og dróst saman um 52% milli ára, og eiginfjárhlutfall fór því úr 28,8% í 22,5%, en 25% þegar leiðrétt hefur verið fyrir áhrifum áskriftarréttinda. Heildarskuldir námu 103 milljörðum, en þar af voru skammtímaskuldir rétt um helmingur.

Mest krefjandi ár flugsöunnar
Haft er eftir Boga Nils Bogasyni forstjóra Icelandair í tilkynningu með ársuppgjörinu að síðasta ár hafi verið mest krefjandi ár flugsöunnar sökum heimsfaraldursins.

Enn standi félagið frammi fyrir verulegri óvissu vegna þróunar faraldursins, dreifingar bóluefna og þróunar reglna á landamærum, sem muni skipta sköpum fyrir það.

Að lokum segist hann sjá aukin tækifæri í tengiflugi milli Evrópu og Norður-Ameríku vegna breytinga í samkeppnisumhverfinu.

Ummæli Boga í heild:

„Kórónuveirufaraldurinn hélt áfram að hafa áhrif á afkomu félagsins í fjórða ársfjórðungi og starfsemi félagsins var í lágmarki á tímabilinu. Með því að nýta sveigjanleika leiðakerfisins náðum við að auka flugframboð í desember til að mæta aukinni eftirspurn eftir flugi til og frá Íslandi yfir jól og áramót.

Það er óhætt að segja að 2020 hafi verið mest krefjandi ár flugsögunnar. Við höfum tekið hlutverk okkar alvarlega  frá upphafi faraldursins og tryggt mikilvægar flugsamgöngur til og frá Íslandi, bæði fyrir farþega og frakt. Við gripum til nauðsynlegra aðgerða á árinu til að draga úr kostnaði og útflæði fjármagns og styrktum samkeppnishæfni félagsins til lengri tíma með því að ráðast í yfirgripsmikla fjárhagslega endurskipulagningu sem lauk með vel heppnuðu hlutafjárútboði. Við vorum þakklát fyrir góða þátttöku í útboðinu, þar sem 23 milljarðar króna í nýtt hlutafé söfnuðust og um sjö þúsund aðilar bættust í breiðan hóp hluthafa sem nú telur yfir 13 þúsund.

Á sama tíma höfum við lagt áherslu á að verja mikilvæga innviði til að geta brugðist hratt við örum breytingum á mörkuðum okkar. Á þetta reyndi síðastliðið sumar þegar ferðatakmörkuðum var aflétt tímabundið. Þá náðum við að auka flugið hratt og örugglega til að mæta talverðri eftirspurn eftir flugi til og frá Íslandi. Þar að auki náðum við að auka tekjur á árinu með því að grípa ný tækifæri í leigu- og fraktflugi.

Að tryggja heilsu og öryggi viðskiptavina okkar og starfsfólks hefur verið í forgrunni hjá okkur undanfarin misseri með víðtækum aðgerðum, auk áherslu á aukna upplýsingagjöf í síbreytilegum aðstæðum. Vegna verulegs samdráttar í flugi margfaldaðist fjöldi beiðna frá viðskiptavinum sem við lögðum okkur fram við að leysa. Það þurfti útsjónarsemi að koma þeim farþegum á áfangastað sem þurftu að ferðast og jafnframt kláruðum við að afgreiða endurgreiðslur og aðrar beiðnir um breytingar sem söfnuðust hratt upp á árinu.

Við stöndum enn frammi fyrir verulegri óvissu. Þróun faraldursins, dreifing bóluefna og hvernig reglur á landamærum þróast mun skipta sköpum varðandi framhaldið. Við erum hins vegar hóflega bjartsýn að geta aukið flug frá og með öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það er ánægjulegt að kyrrsetningu MAX vélanna hefur nú verið aflétt eftir gríðarlega umfangsmikið alþjóðlegt ferli og hafa fjölmörg flugfélög nú þegar tekið vélarnar í notkun. Við gerum ráð fyrir að vélarnar verði komnar í rekstur hjá okkur á vormánuðum og er undirbúningur þegar hafinn. Hann felur í sér ýmsar uppfærslur, viðhaldsverkefni og aukna þjálfun flugmanna með flugöryggi að leiðarljósi. Vélarnar eru bæði hagkvæmari og umhverfisvænni en eldri vélar, munu gefa okkur aukinn sveigjanleika þegar við aukum flugið á ný og styðja þróun leiðakerfisins til framtíðar. Ég er þess fullviss að það verða talsverð tækifæri fyrir Ísland og þar með leiðakerfi Icelandair eftir faraldurinn. Ísland verður áfram eftirsóttur áfangastaður ferðamanna og, vegna breytinga í samkeppnisumhverfinu, sjáum einnig aukin tækifæri í tengiflugi milli Evrópu og Norður Ameríku í gegnum Ísland.

Ég vil nýta tækifærið og þakka okkar frábæra starfsfólki fyrir þeirra mikilvæga framlag og þrautseigju á liðnu ári. Ég vil einnig þakka viðskiptavinum okkar og hluthöfum fyrir stuðninginn í gegnum þessa erfiðu tíma. Með skýrri framtíðarsýn, réttri forgangsröðun og samvinnu mun félagið koma sterkara til baka þegar flug og ferðalög glæðast á ný.”