Sótt var um stofnframlög til uppbyggingar á 239 hagkvæmum leiguheimilum til Íbúðalánasjóðs vegna síðari úthlutunar ársins 2016 en umsóknarfrestur rann út 30. janúar sl. Alls er sótt um stofnframlag fyrir ríflega 1,3 milljarða kr. en 700 milljónum kr. verður úthlutað að þessu sinni. Áður hafði Íbúðalánasjóður úthlutað 2 milljörðum kr. Ríki og sveitarfélög leggja bæði til stofnframlög til íbúðabygginganna, samtals 30%, sem þýðir að íbúðaframkvæmdir fyrir í kringum 10 milljarða kr. fara af stað í kjölfar þessara tveggja úthlutana. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu um málið.

Gert er ráð fyrir að byggja 100 íbúðir fyrir námsmenn, 44 félagslegar íbúðir sveitarfélaga, 12 íbúðir til byggingar sértækra búsetuúrræða fyrir fatlaða, 12 íbúðir fyrir öryrkja og 71 íbúð ætlaða leigjendum undir tekju- og eignamörkum.

11 íbúðir á Vestfjörðum

Sveitarfélög sem taka þátt í þessari úthlutun eru; Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópavogur, Seltjarnarnesbær, Sveitarfélagið Skagafjörður, Ísafjarðarbær og Mýrdalshreppur. Sótt er um stofnframlag til 217 íbúða á höfuðborgarsvæðinu, 2 á Norðurlandi Eystra, 8 á Norðurlandi vestra, 1 á Suðurlandi og 11 á Vestfjörðum.

„Í fyrri úthlutun Íbúðalánasjóðs í janúar voru samþykktar umsóknir um stofnframlög til uppbyggingar á 385 nýjum leiguheimilum í 11 sveitarfélögum fyrir alls um 2 milljarða króna. Alls mun því sjóðurinn á skömmum tíma úthluta um 2,7 milljörðum króna til uppbyggingar á ríflega 500 hagkvæmum íbúðum sem rísa munu víðs vegar um landið á næstunni,“ segir í tilkynningunni.

Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir við tilefnið: „Líkt og hagdeild Íbúðalánasjóðs hefur bent á þá er vandinn á húsnæðismarkaðnum að stóru leyti framboðsskortur og það er því fagnaðarefni að svo mikil eftirspurn sé eftir stofnframlögum til að byggja ódýrar leiguíbúðir. Stjórnvöld munu setja verulega fjármuni í að byggja upp þennan nýja valkost sem er ekki félagslegt húsnæði heldur ódýrt húsnæðiskerfi að danskri fyrirmynd og við köllum Leiguheimili. Ég tel að þeir stóru hópar fólks sem eru að kljást við allt of háan húsnæðiskostnað fagni því að heyra að fjöldi íbúða sé nú á leið á markað þar sem leiga verður að líkindum fjórðungi lægri en algeng markaðsleiga. Það styttist óðum í þessar íbúðir og ástæða þess að hægt verður að hafa leiguna svona mikið lægri eru þessu ríflegu stofnframlög ríkis og sveitarfélaga.“