Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskólann í Garðabæ rann út mánudaginn 15. febrúar sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust tíu umsóknir um stöðuna, frá tveim konum og 8 körlum. Umsækjendur eru:

Alda Baldursdóttir, sviðsstjóri, Aðalheiður Dröfn Eggertsdóttir, framhaldsskólakennari, Ársæll Guðmundsson, skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar, Hafsteinn Karlsson, skólastjóri Salaskóla í Kópavogi, Jóhannes Ágústsson, framhaldsskólakennari, Kristinn Þorsteinsson, aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Garðabæjar, Kristján Bjarni Halldórsson, framhaldsskólakennari, Magnús Ingólfsson, framhaldsskólakennari, Magnús Ingvason, kennslustjóri, Þór Steinsson Steinarsson, framhaldsskólakennari.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst nk., að fenginni umsögn hluteigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum segir í tilkynningu.