Tíu stærstu hluthafar Dagsbrúnar eiga samtals 4.400.742.123 krónur að nafnverði sem samsvarar 86,77% hlutafjár. Þetta kemur fram í skráningarlýsingu félagsins sem lögð hefur verið fram í Kauphöllinni. Hluthafar Dagsbrúnar voru 1.011 þann 24. apríl 2006.

Í skráningarlýsingunni kemur fram að Dagsbrún er hvorki kunnugt um að samkomulag sé á milli hluthafa félagsins varðandi meðferð atkvæða, né að einhverjir hluthafar hafi skuldbundið sig til þess að selja ekki hlutabréf sín í ákveðinn tíma