Viðskiptahraðallin Startup Reykjavík fer fram í sjötta skipti í sumar. Um 150 teymi sóttu um að taka þátt í ár og hafa 10 verið valin. Í heildina hafa 60 fyrirtæki tekið þátt í viðskiptahraðlinum frá upphafi verkefnisins árið 2012 að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandic Startups. Verkefnið er samstarfsverkefni Icelandic Startups og Arion banka.

Sprotafyrirtækin tíu sem hafa verið valin til þátttöku í sumar eru:

Bone & Marrow

Heilsu- og matvælafyrirtæki sem leitar í smiðju forfeðra eftir æskilegri næringu handa nútímamanninum.

Data Plato

Sýndar-fjármálastjóri sem veitir fyrirtækjum aðstoð við stjórnun fjármála með nýtingu gervigreindar.

Itogha

Greina ákveðna áhættuþætti sem tengjast lífstílssjúkdómum með einföldum prófum, þar á meðal hjarta- og æðasjúkdóma. Itogha býður einnig upp á matvæli sem þróuð hafa verið í samstarfi við vísindamenn og matreiðslufólk og eiga að draga verulega úr líkum á lífstílssjúkdómum.

Myrkur

Leikjafyrirtæki sem vinnur nú að hönnun og þróun á nýjum ævintýra hlutverkaleik.

My Shopover

Hugbúnaður sem gerir ferðamönnum kleift að tengjast heimamanni, eða verslunarráðgjafa og fá ráðleggingar varðandi verslun á svæðinu.

Maul

Hugbúnaður sem í krafti fjöldans gerir starfsmönnum ólíkra vinnustaða kleift að panta daglega hádegismat víðs vegar frá og sendir á staðinn.

Porcelain Fortress

Tölvuleikjastúdíó sem leggur áherslu á að gera skemmtilega, litla og vandaði leiki fyrir PC og leikjatölvur.

Flow Education

Flow er heildstætt einstaklingsmiðað námskerfi sem byggt er á nútímatækni og leiðandi kenningum í sálfræði til að hraða fyrir námi barna.

Safe Seat

SAFE Seat er fjaðrandi bátasæti sem verndar hryggsúluna í erfiðu sjólagi.

Zifra Tech

Þróa minniskort sem dulkóðar upptökur á rauntíma. Í upphafi er horft til fjölmiðlafólks sem þarf að vernda sig, sögur sínar og heimildarmenn.

Arion banki fjárfestir 24 milljónum króna

„Með þátttöku í Startup Reykjavík njóta sprotafyrirtækin leiðsagnar fjölda þaulreyndra sérfræðinga og stjórnenda sem deila þekkingu sinni, reynslu og tengslaneti.  Fyrirtækin fá jafnframt aðgang að sameiginlegri vinnuaðstöðu í 10 vikur. Að auki fjárfestir Arion banki í fyrirtækjunum sem taka þátt í verkefninu fyrir 2,4 milljónir króna gegn 6% eignarhlut. Startup Reykjavík var valinn besti viðskipahraðall Norðurlanda árið 2015 og besti viðskiptahraðallinn á Íslandi árin 2015 og 2016,“ segir að lokum í tilkynningunni.