Gera má ráð fyrir að 100-120 kúabú (um 20% heildarframleiðslunnar) á landsvísu eigi í verulegum greiðsluvanda. Þessir aðilar munu eiga í vandræðum með að fjármagna kaup á rekstrarvörum svo sem  áburði og sáðvörum, en sá kostnaður gæti verið 400-500 milljónir kr. á næstunni. Þetta kom fram á fundi sem landbúnaðarráðherar hélt með hagsmunaaðilum.

Í tilkynningu sem send var út í kjölfar fundarins segir að mikilvæg sé að mjólurframleiðsla dragist ekki saman, þar sem staðan á markaðnum er þannig að framboð og eftirspurn eru í jafnvægi.         Á fundinum kom fram að sauðfjárbúin eru ekki jafn skuldsett og vandinn því ekki eins mikill þar. Þó má gera ráð fyrir að einhverjir sauðfjárbændur muni ekki eiga í erfiðleikum með að fjármagna áburðarkaup.

Fæðuöryggi og dýraverndunarsjónarmið

Sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, boðaði til fundar í ráðuneytinu um stöðuna í skuldamálum bænda. Landbúnaðarráðherra tók fram í upphafi fundar að allir aðilar yrðu að gera sér vel grein fyrir mikilvægi fæðuöryggis, dýraverndunarsjónarmiðum og hinni samfélagslegu ábyrgð í málinu.  Tryggja verður framleiðendum með öllum ráðum rekstrarfé, þannig að framleiðsla haldist segir í tilkynningu.

Staða þeirra sem verst eru settir er þannig, að úrræði banka og lánastofnana virðast ekki duga til áframhaldandi reksturs segir í tilkynningu. Fram kom að mun hægar hefur gengið að ganga frá skuldamálum bænda en áformað var. Á því eru ýmsar skýringar, m.a. að sum fjármögnunarfyrirtækin hafa ekki unnið með bönkunum að þessum málum eins og ráð var fyrir gert. Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtakanna og fulltrúar ráðuneytisins tóku sérstaklega fram á fundinum, að mjög gott samstarf væri við  bankana um þessi mál.

Á fundinum var ákveðið að fulltrúar bankanna myndu á næstu dögum gera ráðuneytinu grein fyrir hvað þyrfti að gera svo hægt væri að flýta þessu ferli, þannig að hægt væri að koma  skuldamálum bænda í viðunandi farveg. Ákveðið var að Ingimar Jóhannsson frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu myndi vinna að málinu með fulltrúum viðskiptabankanna.