Lífskjararannsókn Hagstofu Íslands 2010 sýnir að 10,1% heimila voru í vanskilum með húsnæðislán eða leigu einhvern tíma síðastliðnu 12 mánuði og 13,3% voru í vanskilum með önnur lán. Þetta segir í frétt Hagstofunnar.

„Nálega helmingur heimila átti erfitt með að ná endum saman á árinu. 16,5% heimila töldu húsnæðiskostnað þunga byrði og 19,2% töldu greiðslubyrði annarra lána en húsnæðislána eða leigu þunga. Tæp 36% heimila gátu ekki mætt óvæntum útgjöldum að upphæð 140 þúsund krónur eftir hefðbundnum leiðum. Þegar heildarmyndin er skoðuð var fjárhagsstaða heimilanna verri árið 2010 en næstu ár á undan.

Þegar horft er til heimilisgerðar kemur í ljós að einstæðir foreldrar áttu helst í fjárhagsvanda árið 2010. Barnlaus heimili þar sem fleiri en einn er fullorðinn stóðu best fjárhagslega. Heimili þar sem meðalaldur fullorðinna einstaklinga var 30-39 ár virtust eiga í mestum vanda þegar litið var til aldurs. Almennt má segja að því hærri sem meðalaldur fullorðinna einstaklinga er í heimili, því betur stendur það fjárhagslega,“ segir í fréttinni.