101 skuggi ehf. hagnaðist um 377 milljónir króna árið 2010 samanborið við 4,5 milljarða tap árið áður. Eigið fé félagsins er neikvætt um tæpa fjóra milljarða og eignir nema samtals 2,3 milljörðum.

Skammtímaskuldir nema rúmlega sex milljörðum króna og jukust um 800 milljónir á árinu 2010. Bókfært virði fjárfestingaeigna nemur 201 milljón í lok árs. 101 skuggi er í eigu Þyrpingar sem er í eigu Arion banka.

Skuggahverfið
Skuggahverfið
© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)