Tekjur og hagnaður Atlantsolíu drógust saman milli síðustu tveggja ára.

Hagnaður félagsins nam 158 milljónum árið 2013 en 102 milljónum í fyrra.

Í lok síðasta árs námu skammtímaskuldir Atlantsolíu um 256% af skammtímaeignum félagsins. Eigið fé Atlantsolíu nam 711 millj- ónum króna um síðustu áramót og var eiginfjárhlutfallið um 20%.

Félagið greiddi 155 milljónir króna í arð á síðasta ári.

Guðrún Ragna Garðarsdóttir er framkvæmdastjóri Atlantsolíu.