Arion banki og European Investment Fund, EIF, hafa undirritað svonefndan InnovFin ábyrgðarsamning sem miðar að hagstæðum lánveitingum til lítilla og meðalstórra fyrirtækja er hyggjast innleiða nýjungar í starfsemi sinni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Arion banka.

InnovFin samningurinn gerir því Arion banka kleift að veita nýsköpunarfyrirtækjum lán á næstu tveimur árum og eru studd með ábyrgð frá Fjárfestingasjóði Evrópu í samræmi við Horizon 2020, rannsókna- og nýsköpunarrammaáætlun ESB.

Áætlað er að stuðningur ESB við íslensk nýsköpunarfyrirtæki leiði af sér lánasafn að andvirði 107 milljón evra, eða því sem samsvarar 13,1 milljarði íslenskra króna. EIF ábyrgist helming lánsfjárhæðar hvers láns, sem Arion banki veitir, samkvæmt samningnum.

Haft er eftir framkvæmdastjóra Fjárfestingarsjóðs Evrópu, Pier Luigi Gilibert, að það gleður forsvarsmenn bankans að undirrita fyrsta InnovFin ábyrgðarsamninginn á Íslandsi til hagsbóta fyrir lítil og meðalstjór fyrirtæki.„Þetta er jafnframt fyrsti InnovFIn samningurinn sem Fjárfestingarsjóður Evrópu gerir í EFTA ríki. 107 milljónir evra er veruleg upphæð fyrir íslensk fyrirtæki og við erum sannfærð um að lánasafnið, sem Arion banki ætlar að byggja upp, stutt  ábyrgðum InnovFin, muni efla nýsköpun á Íslandi,“ er haft eftir framkvæmdastjóranum.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir að bankinn leggi mikla áherslu á að styðja við hvers kyns nýsköpun og að samningurinn við European Investment Fund sé liður í því. „Þessi samningur gerir okkur kleift að lána á hagstæðari kjörum en ella þar sem sjóðurinn tekur á sig hluta þeirrar áhættu sem í lánveitingunni felst. Við erum spennt að kynna þessa nýjung fyrir íslenskum fyrirtækjum sem eru að fjárfesta í nýsköpun, vöruþróun, nýjum framleiðsluaðferðum eða sókn á nýja markaði,“ segir Höskuldur.

Haft er eftir framkvæmdastjóra ESB í málefnum rannsókna, vísinda og nýsköpunar, Carlos Moedas að: „Íslensk fyrirtæki, sem leggja áherslu á nýsköpun, geta nú notið góðs af ábyrgðum Evrópusambandsins sem geta alls numið 107 milljónum evra í takt við Horizon 2020, rannsókna- og nýsköpunarrammaáætlun ESB. Samningurinn, sem var undirritaður í dag, mun hjálpa fyrirtækjum að ná markmiðum sínum og leggja sitt af mörkum til hagvaxtar og atvinnusköpunar á Íslandi.“

„Markmiðið með ábyrgðum InnovFin fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki er að hvetja fjármálastofnanir til að lána fyrirtækjum, með færri en 500 starfsmenn, til fjárfestinga og/eða fjármögnunar rannsókna, þróunar og nýsköpunar, með fjárstuðningi frá ESB. Fjárfestingarsjóður Evrópu velur fjármálastofnanir víðs vegar um Evrópu sem lýst hafa yfir áhuga á því að gerast milliliðir,“ segir að lokum í tilkynningunni.