Hagstofa Íslands hefur birt lokatölur um jöfnuð vöruviðskipta á árinu 2016. Voru vörur fluttar úr fyrir 537,4 milljarða króna en inn fyrir 645,6 milljarða. Nam halli á vöruviðskiptum við útlönd á síðasta ári því því 108,2 milljörðum samanborið við 30,6 milljarða halla árið 2015 á gengi hvors árs.

Verðmæti vöruútflutnings minnkaði um 14,2% frá fyrra ári, á gengi hvors árs, og verðmæti vöruinnflutnings minnkaði um 1,7%. Hlutur iðnaðarvöru var 50,3% alls vöruútflutnings og hlutur sjávarafurða var 43,2%.

Í vöruinnflutningi voru stærstu vöruflokkarnir hrá- og rekstrarvörur með 26,1% hlutdeild, fjárfestingarvörur með 21,8% hlutdeild og flutningatæki með 18,6% hlutdeild. Stærsta viðskipta land Íslands í vöruútflutningi var Holland og Noregur í vöruinnflutningi. EES-svæðið var þýðingarmesta markaðssvæðið, jafnt í útflutningi sem innflutningi.