1.085 hluthafar vilja eiga áfram í Landssímanum nú þegar yfirtökutilboð Skipta liggur fyrir. Yfirtökutilboðið var samþykkt af eigendum alls 7.889.502 hluta. Skipti ehf. eiga að tilboðinu afloknu samtals 6.957.621.998 hluti eða 98,88% heildarhlutafjár í Landssíma Íslands hf. Eiga aðrir hluthafar, sem eru 1.085 talsins, því 1,12% af heildarhlutafé félagsins.

Yfirtökutilboð Skipta ehf. til hluthafa í Landssíma Íslands hf. rann út í gær, þriðjudaginn 25. október, eftir hafa staðið frá 27. september sl.