Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 22. júlí til og með 28. júlí 2011 var 109. Þar af voru 80 samningar um eignir í fjölbýli, 25 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 3.017 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27,7 milljónir króna, að því er kemur fram á vef Þjóðskrár .

Sjö kaupsamninum var þinglýst á Suðurnesjum, 9 á Akureyri og 2 á Árborgarsvæðinu.