Tæplega 117 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í janúarmánuði síðastliðnum, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Þetta er 11% fjölgun farþega á milli ára, það er miðað við janúar í fyrra.

Farþegar á leið frá landinu voru 51.764  í janúar síðastliðnum, fjölgaði um 9% á milli ára. Á leið til landsins voru 51.568 farþegar og fjölgaði þeim um 17% miðað við janúar í fyrra. Áfram- og skiptifarþegar (transit) voru rúmlega 13 þúsund sem er sama og í janúar 2007.