11 manns sóttu um starf forstjóra nýrrar stofnunar sem verður til við sameiningu Veðurstofu Íslands og Vatnamælinga Orkustofnunar. Nýja stofnunin mun heita Verðurstofa Íslands.

Umsóknarfrestur rann út 11. júlí síðastliðinn. Gert er ráð fyrir að nýr forstjóri hefji störf 1. ágúst næstkomandi.

Eftirtaldir sóttu um starfið:

Ólafur Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri Reiknistofu í veðurfræði ehf.

Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands.

Árni Snorrason, forstöðumaður Vatnamælinga Orkustofnunar.

Sólveig Þorvaldsdóttir, ráðgjafarverkfræðingur hjá Rainrace ehf.

Steinunn S. Jakobsdóttir, sviðsstjóri eðlisfræðisviðs Veðurstofu Íslands.

Sigrún Karlsdóttir, deildarstjóri spádeildar Veðurstofu Íslands.

Þóranna Pálsdóttir, forstöðumaður veðursviðs Veðurstofu Íslands.

Conny Larsson, dósent í veðurfræði við jarðvísindastofnun Uppsalaháskóla.

Sverrir Jenssen, sjálfstætt starfandi við rannsóknir í veðurfræði og stærðfræði.

Ísak Örn Sigurðsson, sjálfstætt starfandi.

Hulda Birna Baldursdóttir, markaðsstjóri.