Eiginkona bresks framvæmdastjóra ákvað að hala niður fjórum Friends þáttum á Vodafone-síma manns síns. Ekki þykir það í frásögur færandi fyrir utan að áður en niðurhalið kláraðist skaust eiginmaðurinn til Þýskalands, með símann með sér, óafvitandi um niðurhal eiginkonunnar.

Niðurhal gegnum síma Vodafone í Bretlandi er frítt, sem það er alls ekki utan Bretlands. Í kjölfarið kom reikningur upp á 11 þúsund pund eða um 1,4 milljón krónur íslenskar. Úbbs! Hjónin ætla sér að berjast fyrir því að fá reikninginn felldan niður.

Málið hefur gefið umræðunni um óréttlát gjöld símafyrirtækjanna, sem Evrópusambandið hefur meðal annars beitt sér fyrir, byr undir báða vængi.