Um 11,7 milljarða velta var í Kauphöllinni í dag. Um 10,8 milljarða velta var í viðskiptum með skuldabréf og 876 milljóna króna velta í viðskiptum með hlutabréf.

Mest hækkaði gengi bréfa í Össuri eða um 4,76% en þar á eftir hækkaði gengi Sjóvá um 1,71% og Regins um 1,43%. Gengi þriggja félaga lækkaði í dag. Mesta lækkun var í gengi bréfa Icelandair Group um 0,92%, Haga um 0,36% og N1 um 0,3%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,12% og stendur lokagildi hennar í 1.284,08.