Á þeirri rúmu viku sem jólabjórinn hefur verið í sölu í áfengisverslunum ríkisins hafa verið seldir um 140  þúsund  lítrar sem er 12% meira magn en á sambærilegu tímabili í fyrra.

Þetta kemur fram á vef Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins.

Mest hefur verið selt af Tuborg Christmas Brew eða tæpir 65 þúsund lítrar sem er tæpur helmingur  af því magni sem selt hefur verið.  Þá hafa verið seldir tæplega 30 þúsund lítrar af Víking Jólabjór og um 13.400 lítrar af Kalda Jólabjór.

Þá kemur framá vef ÁTVR að sumar tegundir sem komu í takmörkuðu magni hafi vakið mikla athygli.  Þar er líklega Giljagaur fremstur í flokki en sú tegund er nú nánast uppseld í Vínbúðunum og ófáanleg frá framleiðenda. Það sama má segja um  Gæðing, jólabjór frá Ölvisholti og Mikkeller Red White Christmas sem líklega verða uppseldar fljótlega þar sem ekki er hægt að fá meira magn frá framleiðanda eða innflytjanda.