Hagnaður HS Orku á fyrstu níu mánuðum ársins nam 1.238 milljónum króna samanborið við 2.226 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur námu 5.144 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins en voru 4.357 á fyrstu níu mánuðum ársins í fyrra.

HS Orka birti árshlutareikning sinn í dag.

Eignir félagsins voru um 41,7 milljarðar í lok september, samanborið við rúmlega 42 milljarða í lok árs 2009.