Hagfræðideild Landsbankans býst við því að ferðamenn á Íslandi verði orðnir ein milljón manna á næsta ári og 1200 þúsund árið 2016. Þeir voru 300 þúsund árið 2000 og gangi spáin eftir er þvi um að ræða fjórföldun á sextán árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Hagfræðideildar Landsbankans um stöðu og horfur í ferðaþjónustu.

Í skýrslunni er greint frá niðurstöðu greiningar Hagfræðideildar Landsbankans á ársreikningum tæplega 1200 fyrirtækja í ferðaþjónustu á Íslandi en þessar upplýsingar hafa ekki verið teknar saman áður. Sú greining bendir til þess að afkoma í greininni hafi batnað, þótt batanum hafi reyndar verið misskipt.

Í skýrslunni er fjallað um ýmsa þætti sem tengjast ferðamönnunum sjálfum, hvaðan þeir koma, hvenær ársins, hversu miklu þeir eyða og í hvað. Einnig er fjallað um þróun fjárfestinga undanfarin ár, um þá fjárfestingu sem stendur fyrir dyrum og nauðsynlegar aðgerðir sem ráðast þarf í til að mæta örum vexti ferðaþjónustunnar.

Hagfræðideildin bendir á að rannsóknar- og þróunarstarf í ferðaþjónustu er takmarkað og að það skorti á nauðsynlega samræmingu á milli opinberra aðila og fyrirtækja í ferðaþjónustu.