Um 242 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í ágúst síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða rúmlega 52 þúsund fleiri en í ágúst á síðasta ári. Aukningin nemur 27,5% milli ára.

Heildarfjöldi ferðamanna frá áramótum er um 1,2 milljónir tæpar eða 32,7% fleiri miðað við fjölda ferðamanna á tímabilinu janúar til ágúst árið 2015.

Fjórar þjóðir helmingur ferðamanna

Fjórar þjóðir voru áberandi fjölmennastar þegar skoðað er hvernig ferðamannahópurinn var samsettur. Þetta voru Bandaríkjamenn, Þjóðverjar, Frakkar og Bretar. Samtals voru ferðamenn frá þessum löndum 122.200 í ágúst, eða ríflega helmingur allra ferðamanna. Sé Ítölum, Kanadamönnum og Spánverjum bætt við þá voru sjö þjóðir með tvo þriðju af heildinni.

Langmest fjölgun í ágúst var meðal Bandaríkjamanna eða 20.500 manns miðað við ágúst 2015. Í prósentum var þetta 56,3% fjölgun á milli ára. Veruleg fjölgun var einnig frá Kanada, ríflega 5 þúsund manns eða 72,1%. Frökkum fjölgaði um 4.651 (28,7%), Þjóðverjum um 3.636 (15,6%), Bretum um 2.495 (16,6%), Ítölum um 2.361 (26,1%) og Spánverjum um 2.003 (22,2%).

Sexföldun N-Ameríkana frá 2010

Þegar litið er til fjölda ferðamanna í nýliðnum ágústmánuði eftir markaðssvæðum má sjá verulega fjölgun frá árinu 2010 frá flestum svæðum. Mest áberandi er breytingin hjá Norður-Ameríkönum en fjöldi þeirra hefur nærri sjöfaldast, að miklu leyti síðustu þrjú ár. Fjöldi Breta hefur nærri þrefaldast og fjöldi Mið- og Suður Evrópubúa ríflega tvöfaldast. Fjöldi ferðamanna frá löndum sem lenda í hópnum ,,annað“ hafa nærri þrefaldast. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað minnst eða um 25.5% frá 2010.