Verkefnastofa Borgarlínu hefur skipað hönnunarteymi fyrir fyrstu tvo áfanga Borgarlínu. Hönnunarteymið mun vinna frumdrög að fyrstu framkvæmdum Borgarlínu.

Um er að ræða tvær framkvæmdalotur sem alls munu verða um 13 kílómetrar að lengd, það er:

  • Rauð leið: Hamraborg – Hlemmur
  • Græn leið: Ártún – Hlemmur.

Vinna við hönnun er þegar hafin og er gert ráð fyrir að fyrstu tillögur verði tilbúnar í vor. Hönnunarteymið mun heyra undir Verkefnastofu Borgarlínu. Erlendir ráðgjafar frá BRTPlan munu veita hönnunarteyminu sérfræðiráðgjöf á sviði BRT (Bus Rapid Transit) kerfa.

BRTPLan starfar í New York í Bandaríkjunum og hefur komið að skipulagi og framkvæmdum kerfa í norður og suður Ameríku, Asíu, Afríku og Evrópu. Við hönnun verði horft til samgangna, uppbyggingar húsnæðis og mannlífs. Leitað var til íslenskra verkfræðistofa og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu eftir sérfræðingum í hönnunarteymið.

Það er nú skipað eftirfarandi sérfræðingum:

Efri röð myndar að ofan:

  • Hallbjörn R. Hallbjörnsson, Vegagerðinni
  • Kristinn H. Guðbjartsson, Verkís
  • Ingólfur Ingólfsson, Hnit
  • Svanhildur Jónsdóttir, VSÓ
  • Stefán Gunnar Thors, VSÓ
  • Edda Ívarsdóttir, Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur
  • Hrafnkell Ásólfur Próppé, Verkefnastofu Borgarlínu (VB).

Neðri röð myndar að ofan:

  • Birkir Ingibjartsson, Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur,
  • Hildur Inga Rós Raffnsöe, Umhverfissvið Kópavogs,
  • Walter Hook, BRTPlan.
  • Bryndís Friðriksdóttir, VB
  • Lilja G. Karlsdóttir, VB.

Hrafnkell Ásólfur Proppé, verkefnastjóri Borgarlínu segir að þegar afraksturinn liggi fyrir í vor þá muni fólk átta sig jákvæðum áhrifum Borgarlínunnar á borgarumhverfið með bættum aðstæðum fyrir almenningssamgöngur, gangandi og hjólandi.

„Jafnframt mun á þeim tíma liggja fyrir tillaga að leiðakerfi, greining á vagnakostum m.t.t. loftslagsmála, greining á rekstrarkostnaði og mat á hagrænum sem samfélagslegum þáttum,“ segir Hrafnkell Ásólfur.

Hér að neðan má sjá hugmyndir um hvernig fyrstu tveir áfangar svokallaðrar Borgarlínu, það er almenningssamgangnakerfis á sérakreinum sem vænst hefur að kosti yfir 90 milljarða króna að byggja, verða það er græna og rauða leiðin á kortinu:

Fyrstu tveir áfangar Borgarlínu, græn og rauð leið
Fyrstu tveir áfangar Borgarlínu, græn og rauð leið
© Aðsend mynd (AÐSEND)