Tólf sprotafyrirtæki fengu nýsköpunarstyrk Uppsprettunnar til að vinna að nýsköpunarverkefnum í matvælaiðnaði. Uppsprettan, sem er nýsköpunarsjóður Haga, er ætlaður er til stuðnings við frumkvöðla til þróunar og nýsköpunar í íslenskri matvælaframleiðslu. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Sjóðurinn leggur sérstaka áherslu á að verkefnin sem að hljóta styrkveitingu taki tillit til sjálfbærni og styðji innlenda framleiðslu. Tugir umsókna bárust um styrk í sjóðinn og valdi matsnefnd 12 verkefni til styrkveitingar að heildarverðmæti 16 milljón króna. Styrkirnir voru kynntir á sérstökum viðburði á lokadegi Nýsköpunarvikunnar.

Finnur Oddsson, forstjóri Haga:

,,Það er mikill kraftur í íslenskri nýsköpun í matvælaiðnaði og viljum við hjá Högum leggja okkar að mörkum að virkja þennan kraft og auka innlenda framleiðslu. Nýsköpunarsjóðurinn Uppsprettan er liður í því og er nafn sjóðsins táknrænt fyrir hlutverk hans.  Að styðja við góðar hugmyndir, vökva þær til vaxtar og tryggja það að sprotinn geti vaxið og dafnað til framtíðar.”

Styrkhafar Uppsprettunar 2022 eru eftirfarandi:

  • Hops er ný gerð áfengislausra drykkja sem framleiddir verða á Íslandi. Drykkirnir eru bruggaðir eftir nýstárlegum aðferðum sem þróuð hefur verið með Álfi Brugghúsi. Hops er án aukaefna, sykurlaus og áfengislaus.
  • Smjer er allt sem þú þarft í einu smjörstykki til þess að gera dýrindis sósu á örskammri stundu. Fyrsta vara Smjer er bearnaise og ættu allir landsmenn að geta eldað ljúffenga bearnaise með steikinni í sumar.
  • Baða framleiðir íslenskar sápur úr íslenskum hráefnum. Baða hefur fengið styrk til framleiðslu og þróunar á þremur nýjum vörum sem að nota íslensk hráefni sem að hafa græðandi og róandi áhrif.
  • Svepparíkið vinnur að þróun og ræktun á sælkeramatsveppum úr lífrænum úrgangi frá matvælaiðnaði. Sjálfbær ræktun sælkerasveppa er ný á Íslandi.
  • Sifmar er sprotafyrirtæki sem að vinnur að framleiðslu á hollum íslenskum barnamat.  Hugmyndafræði fyrirtækisins er að nýta íslenskt grænmeti og ávexti sem annars færu til spillis og vinna það áfram með íslenskum orku- og vatnsauðlindum.
  • Úr sveitinni er sprotafyrirtæki sem að vinnur að ræktun á gulrætum í öllum regnbogans litum. Litríkar gulrætur gera meðlætið og nestið skemmtilegra.
  • Máltíð á mettíma er vörulína frostþurrkaðra rétta. Fyrsti rétturinn sem kemur á markað er Kjöt í karrý.
  • Bökum saman er fjölskyldufyrirtæki sem að auðveldar fjölskyldum að skapa saman gæðastundir við bakstur. Bökum saman hefur fengið styrk fyrir þróun á þremur nýjum vörum frá fyrirtækinu.