Um 1200 manns hafa sótt um sumarstörf flugliða hjá flugfélaginu Wow air. Störfin voru auglýst í nóvember og búist er við því að fimmtíu til sextíu verði ráðnir. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Þar segir einnig að þetta sé mikil aukning frá því í fyrra þegar átta hundruð sóttu um störf flugliða.

Þrjú hundruð þeirra sem sóttu um störf flugliða hjá WOW air fara í inntökupróf í Háskólabíói á morgun og í kjölfarið munu viðtöl hefjast um miðjan mánuðinn.