Rekstrarniðurstaða Kópavogsbæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins er neikvæð um tæplega 1.162 milljónir króna, samkvæmt tilkynningu félagsins til Kauphallar. Afkoma fyrir fjármagnsliði, breytingu lífeyrisskuldbindinga og afskrifta, nemur alls 1.809 milljónir króna. Í áætlun var gert ráð fyrir 242 milljóna rekstrarafgangi.

Í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að almennur rekstur bæjarsjóðs hefur í stórum dráttum verið í takt við áætlun, sem unnin var í lok síðasta árs.

„Uppgjörið er gert í samræmi við lög og reglugerðir en þó þannig að ekki eru samdar sérstakar skýringar með árshlutauppgjörinu aðrar en eru í meðfylgjandi greinargerð.  Uppgjörið er notað innanhúss til að athuga hvernig rekstrarkostnaður hefur þróast og myndar það grunn að útkomuspá ársins 2011 og fjárhagsáætlun ársins 2012.

Aðal frávikið frá áætlun ársins 2011 liggur í fjármagnsliðum. Er þar aðallega um að ræða reiknað gengistap vegna erlendra lána  (um 780 m.kr.), en í  áætlunum bæjarins er ekki áætlað fyrir gengisbreytingum. Þá urðu reiknaðar verðbætur meiri en áætlað var á fyrri árshelmingi, eða um 690 m.kr. hærri. Samkvæmt uppgjörinu eru heildartekjur heldur hærri en áætlað hafði verið sem og rekstrarkostnaður. Laun eru hærri en áætlað var, m.a. vegna kjarasamninga sem ekki var sérstaklega áætlað fyrir.“

Í fyrri frétt Viðskiptablaðsins var sagt að afgangur var af rekstri Kópavogsbæjar. Það er ekki rétt, hið rétt er að tap var af rekstrinum.