Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2008 fluttar út vörur fyrir 467,1 milljarð króna en inn fyrir 472,7 milljarða króna fob (513,8 milljarð króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd samkvæmt bráðabirgðatölum, reiknað á fob verðmæti, sem nam 5,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 127,5 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 121,9 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Samkvæmt bráðabirgðatölum voru í desembermánuði fluttar út vörur fyrir tæpa 54,0 milljarða króna og inn fyrir 29,8 milljarða króna fob (32,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því samkvæmt bráðabirgðatölum hagstæð um 24,2 milljarða króna. Í desember 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 16,7 milljarða króna á sama gengi.