Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júní 2009 er 344,5 stig og hækkaði um 1,38% frá fyrra mánuði.

Þetta þýðir að 12 mánaða verðbólga mælist nú 12,2%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en á myndinni hér til hliðar má sjá þróun verðbólgunnar s.l. 5 ár. Þar sést, eins og kunnugt er hvernig verðbólgan hefur hækkað jafnt og þétt síðustu mánuði og náði 18,6% hámarki í janúar s.l. Þá hafði hún lækkað nokkuð hratt á fyrri hluta þessa árs, eða þangað til nú þegar hún hækkar á ný.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 322,1 stig og hækkaði hún um 1,90% frá maí.

Á vef Hagstofu kemur fram að fastskattavísitala neysluverðs hækkaði um 0,98% en hún reiknar verðbreytingar miðað við að sköttum og gjöldum sé haldið föstum. Áfengis- og tóbaksgjald auk gjalda á bensín og díselolíu voru hækkuð með lögum sem samþykkt voru 28. maí síðastliðinn. Þessar breytingar, að undanskilinni hækkun bensíngjalds, eru þegar komnar til framkvæmda og höfðu þær um 0,4% áhrif til hækkunar á vísitölunni nú.

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 7,8% (vísitöluáhrif 0,36%) og verð á áfengi og tóbaki um 9,8% (0,32%) og er það að hluta til vegna hækkunar gjalda. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,2% (0,17%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,8% (-0,11%). Áhrif af lækkun markaðsverðs voru -0,07% en af lækkun raunvaxta -0,04%.

Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,0% sem jafngildir 12,5% verðbólgu á ári (18,1% fyrir vísitöluna án húsnæðis).