

Hagnaður verðbréfa- og fjárfestingasjóða Íslandssjóða nam 12,3 milljörðum króna á árinu 2020 og rennur til viðskiptavina Íslandssjóða í formi ávöxtunar, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.
Þar segir jafnframt að Íslandssjóðir hafi hagnast um 482 milljónir króna árið 2020 og hreinar rekstrartekjur numið 1.846 milljónum króna. Starfsfólk Íslandssjóða fylgi aðferðum ábyrgra fjárfestinga í allri eignastýringu. Þá stýri Íslandssjóðir eina græna skuldabréfasjóði landsins. Alls hafi eignir í stýringu hjá Íslandssjóðum verið 349 milljarðar króna í árslok.
„Allir verðbréfa- og fjárfestingasjóðir skiluðu jákvæðri ávöxtun á árinu. Sjóðurinn IS Einkasafn E skilaði bestu ávöxtun allra blandaðra sjóða á landinu og fleiri sjóðir Íslandssjóða voru í efstu sætum á landsvísu samkvæmt flokkun Keldunnar (keldan.is),“ segir í tilkynningunni.
Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2020:
Lykiltölur í milljónum króna:
„Það er ánægjulegt að ávöxtun viðskiptavina okkar hafi verið svo góð á þessu sérstaka ári. Stýring sjóða og eignasafna viðskiptavina okkar gekk með afburðum vel og allir helstu eignaflokkar skiluðu sparifjáreigendum góðri ávöxtun á árinu. Þá hefur ekki síður verið gaman að sjá sparnað stóraukast hjá landsmönnum í þessu ástandi . Sjóðir Íslandssjóða sem eru opnir öllum sparifjáreigendum hafa stækkað hratt undanfarið og eru nú komnir yfir 200 milljarða að stærð, stærst allra sjóðastýringarfélaga hér á landi. Vaxtastig er lágt en skuldabréf og sérstaklega hlutabréf hafa skilað mjög góðri ávöxtun sem hvetur fólk til að spara og fjárfesta,“ er haft eftir Kjartani Smára Höskuldssyni, framkvæmdastjóra Íslandssjóða, í tilkynningunni.