Farþegum í áætlunarflugi Icelandair fjölgaði um 12,4% í september. Þeir voru tæp 115 þúsund í september í ár, en 102 þúsund í september í fyrra. Frá áramótum eru farþegar Icelandair tæplega 1.060 þúsund, eða 18,2% fleiri en á fyrstu níu mánuðum síðasta árs. Farþegum Flugfélags Íslands í innanlandsflugi fjölgaði um 14,6% í september og hefur fjölgað um 15% á fyrstu níu mánuðum ársins ef miðað er við sama tímabil í fyrra.

Þá fluttu Flugleiðir-Frakt 25,2% fleiri tonn í september en í september 2003 og hafa flutt 29,0% fleiri tonn á fyrstu níu mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra.

Í september voru fartímar ("block-hours", þ.e. sá tími sem flugvél er í notkun, frá því hún fer frá brottfararhliði og þar til hún stöðvar aftur við brottfararhlið) hjá Loftleiðum-Icelandic 44,4% fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Á fyrstu níu mánuðum ársins eru fartímar hjá Loftleiðum-Icelandic 78,8% fleiri en í fyrra.