Fasteignafélagið Reginn hefur nú aukið við hlutafé sitt. Aukningin nemur 126 milljónum króna. Hún er til komin vegna kaupa Regins á fasteignafélögunum Ósvör og CFV1 ehf.

Hlutaféð fyrir aukninguna var 1,42 milljarðar króna að nafnverði. Að henni lokinni er það 1,55 milljarðar króna. Hver hlutur í regin er ein króna að nafnverði eða margfeldi þaðan af.

Sölubann gildir um hina nýju hluti þannig að 30% hlutanna verða seljanlegir við afhendingu, 60% eftir sex mánuði og 100% eftir níu mánuði frá afhendingu.