Alls fóru 74.325 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í nýliðnum júnímánuði eða tæplega níu þúsund fleiri en í júní á síðasta ári. Ferðamönnum í júní fjölgaði því um 13,3% á milli ára samkvæmt talningu Ferðamálastofu.

Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í júní frá Bandaríkjunum (19,2%) og Þýskalandi (13,0%) en þar á eftir komu ferðamenn frá Bretlandi (7,9%), Noregi (7,9%), Frakklandi (5,9%), Danmörku (5,6%) og Svíþjóð (5,4%). Samanlagt voru þessar sjö þjóðir tæplega tveir þriðju ferðamanna í júní.

Á vef stofnunarinnar kemur fram að ef litið er til einstakra markaðssvæða má sjá aukningu frá þeim öllum, hlutfallslega mesta frá Bretlandi (34,6%) og N-Ameríku (20,3%).

Þá kemur fram að alls hafa 244.885 erlendir ferðamenn farið frá landinu á fyrri helmingi ársins eða 37.999 fleiri en á sama tímabili í fyrra. Aukningin milli ára nemur 18,4%. Hlutfallsleg aukning hefur verið frá öllum mörkuðum, langmest þó frá Bretlandi eða 42,6%, N-Ameríku (27,1%).

Frá áramótum hafa 170.820 Íslendingar farið utan, um átta þúsund fleiri en á fyrri helmingi ársins 2011. Aukningin nemur 5,1% milli ára.

Sjá nánar á vef Ferðamálastofu.